Spölur - Hvalfjarðargöng

Hvalfjarðargöng
Forsíða

Umferð jókst um liðlega 2% í apríl

Umferð í Hvalfjarðargöngum jókst um 2,28% í aprílmánuði eða um 3.300 ökutæki frá sama mánuði í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem umferð er meiri en á sama tíma árið 2011. Janúar er sér á báti á yfirliti fyrsta þriðjungs ársins 2012 með mikinn samdrátt frá fyrra ári.

Lesa meira...
 

Óvissa ríkir um hvenær ESB-tilskipun um neytendajafnfræði tekur gildi hérlendis

ESB-tilskipun um jafnræði neytenda mun leiða til verulegra breytinga á gjaldskrá Spalar fyrir venjulega fjölskyldubíla í Hvalfjarðargöngum (bíla undir 6 metrum) þegar hún tekur gildi hérlendis. Óvissa ríkir hins vegar um hvenær íslensk stjórnvöld samþykkja tilskipunina.

Evrópusambandið þrýstir á að tilskipunin gildi á öllu EES-svæðinu en norsk stjórnvöld hafa enn ekki samþykkt að innleiða hana. Íslensk stjórnvöld fylgjast með andófi Norðmanna og hafa ekki gefið eigendum Hvalfjarðarganga til kynna hvort þau hyggist innleiða tilskipunina eða láta ef til vill reyna á undanþáguákvæði varðandi Hvalfjarðargöng til lengri eða skemmri tíma.

Boltinn er með öðrum orðum í Stjórnarráðinu en stjórn Spalar hefur engu að síður rætt og kannað hvaða áhrif tilskipunin hefði á gjaldskrá ganganna. Samkvæmt tilskipuninni er óheimilt að veita meiri afslátt en 13% af veggjöldum, sem myndi þýða að veggjald fyrir staka ferð um göngin lækkaði um 45% en lægsta veggjald (100 ferðir í áskrift) myndi hins vegar hækka um 70%, miðað við verðlag 2012.

Veggjald fyrir staka ferð færi með öðrum orðum úr 1.000 krónum niður í 550 krónur en veggjald áskrifanda með 100 ferðir færi úr 283 krónum upp í 480 krónur.

Eitt er að samþykkja tilskipunina en annað að ákveða þá um leið hvort hún tæki gildi í einu lagi eða í áföngum, ef undanþáguákvæðum yrði beitt. Það skiptir máli fyrir Spöl og viðskiptavini félagsins því lögum samkvæmt á að ljúka við að greiða lán vegna Hvalfjarðarganga haustið 2018 og Spölur afhendir framhaldinu ríkinu umferðarmannvirkið skuldlaust til eignar og rekstrar.

Ef tilskipunin verður á annað borð látin taka gildi í áföngum til einhverra ára kann því að hilla undir gjaldfría umferð í göngunum innan skamms tíma þegar tilskipunin hefur tekið gildi til fulls.

  • Tilskipunin umrædda ber yfirskriftina Directive 2006/38/EC of the European Parliament and of the Council of 17 May 2006 amending Directive 1999/62/EC on the charging of heavy goods vehicles for the use of certain infrastructures. Hana má finna hér á Vefnum.

  • Tilskipunin er sem sagt ekki orðin hluti af EES-samningnum, fyrst og fremst vegna andófs Norðmanna. 

  • Ákvæðið sem kveður á um að óheimilt sé að veita meiri afslátt af veggjöldum en 13% er neðst í 4. kafla, staflið 4b:

4b. As charging structures involving discounts or reductions in tolls for frequent users may lead to actual savings in administrative costs for the infrastructure operator, Member States may provide for such discounts or reductions on condition that:

- they fulfil the conditions set out in paragraph 10(a),

- they comply with the Treaty, in particular Articles 12, 49, 86 and 87 thereof,

- they do not distort competition in the internal market,

- the resulting charging structure is linear, proportionate, available to all users on equal terms and does not lead to additional costs being passed on to other users in the form of higher tolls.

Such discounts or reductions shall in no case exceed 13% of the toll paid by equivalent vehicles not eligible for the discount or reduction.

 

Lokað tvær nætur í byrjun 19. viku

Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt mánudags 7. maí og aðfaranótt þriðjudags 8. maí frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Þetta er nauðsynlegt til að ljúka verkum þar sem frá var horfið við þrif og viðhald þegar lokað var í nokkrar nætur fyrir mánaðarmótin.