Spölur - Hvalfjarðargöng

Hvalfjarðargöng
Forsíða Umferðin var liðlega 4% minni 2011 en 2010

Umferðin var liðlega 4% minni 2011 en 2010

Umferð í Hvalfjarðargöngum var rúmlega 4% minni á árinu 2011 en 2010. Ökutækjum, sem um göngin fóru 2011, fækkaði þannig um liðlega 83.000 frá fyrra ári.

  • Samdrátturinn var mestur í marsmánuði, 15% frá fyrra ári, og svo núna í nýliðnum desember, 12,6% samdráttur frá fyrra ári.
  • Í jólamánuðinum 2011 fækkaði ökutækjum í göngunum þannig um rúmlega 16.000 frá sama tímabili árið þar áður.
  • Umferð dróst saman í öllum mánuðum ársins 2011 nema í júní og ágúst þegar hún jókst lítillega frá fyrra ári. 

Fjöldi ökutækja í Hvalfjarðargöngum í hverjum mánuði frá ársbyrjun 2008.

Ár

Jan

Febr

Mars

Apríl Maí Júní
2008

124.188

125.777

155.842

154.619

178.186

204.407

2009

125.822

122.739

134.034

160.586

176.350

213.155

2010 122.161 115.741

144.081

148.703

176.790

207.621

2011

115.356

112.866

122.469

145.527

163.167

209.181

2012








Ár

Júlí

Ágúst

Sept

Okt Nóv Des

Alls

2008

238.715

223.700

164.209

143.569 137.682 128.042

2.006.090

2009

248.994

218.850

161.693 143.643 136.842

126.961

1.971.516

2010

245.062

214.962

163.425

154.951 129.609 129.177

1.952.283

2011

241.431

215.669

162.436

142.575 125.409 112.890 1.868.976

2012