Öryggiskerfi Hvalfjarðarganga virkaði nákvæmlega eins og til var ætlast, og reyndar gott betur en það, þegar rafmagn fór af á Vesturlandi í óveðrinu í gærkvöld. Rafmagnslaust var í göngunum í um þrjár og hálfa klukkustund.
Einn liður í umfangsmiklum breytingum og endurbótum á öryggis- og eftirlitskerfi ganganna, sem við greindum frá hér á heimasíðunni milli jóla og nýárs, var einmitt að auka neyðarlýsingu ef rafmagnslaust yrði á landskerfinu af einhverjum ástæðum. Slíkar aðstæður sköpuðust einmitt þegar bilun varð í spennistöð Landsnets á Brennimel við Hvalfjörð í ofsaveðrinu í gær.
Rafmagn fór af göngunum laust fyrir kl. 18:30 og kom ekki aftur fyrr en um kl. 22. Við straumrofið reyndi á ný öryggisljós með 50 metra millibili í lofti ganganna og ný „flóttaljós“ á veggjum lýstu áfram endanna á milli í göngunum með 62,5 metra millibili. Þar að auki voru öryggisljós við alla skápa með slökkvitækjum og símtækjum.
Gert var ráð fyrir að straumur á geymum í öryggiskerfi ganganna myndi duga fyrir alla þessa neyðarlýsingu í eina klukkustund eða þar um bil en þegar á reyndi dugði orkuforðinn í tvær og hálfa klukkustund. Þegar neyðarforða af orku þraut var göngunum lokað fyrir umferð þar til rafmagn komst á að nýju, eins og kveðið er á um í viðbragðsáætlun Hvalfjarðarganga.
Það þarf tæpast að taka fram að umferð í göngunum var nánast engin í gærkvöldi, enda veðurhamurinn slíkur að fólk var helst ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn bæri til. Rafmagnsleysið reyndi hins vegar verulega á öryggiskerfi ganganna, sem stóðst prófið með ágætiseinunn.
Öryggiskerfið stóðst prófið í rafmagnsleysinu


