Spölur - Hvalfjarðargöng

Hvalfjarðargöng
Forsíða 17% samdráttur í janúar

17% samdráttur í janúar

Umferð í Hvalfjarðargöngum dróst saman um ríflega 17% í nýliðnum janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er mesti samdráttur í einum mánuði sem mælst hefur eftir efnahagshrunið.

 Það liggur með öðrum orðum fyrir að rétt tæplega 20.000 færri bílar fóru um göngin í janúar í ár en í janúar í fyrra, sem jafngildir 640 bílum færri bílum á sólarhring að jafnaði.

Augljóst er að rysjótt tíð í janúar síðastliðnum setti verulegt strik í reikninginn í umferðinni en tæplega skýrir hún samt söguna alla í göngunum. Líklegt er að þar megi leggja saman áhrif slæms tíðarfars og eldsneytisverðs í hæstu hæðum.

Vegagerðin birti í dag sinar mánaðarlegu upplýsingar um umferð á þjóðvegum landsins og þar kemur fram að samdráttur í janúar síðastliðnum hafi numið ríflega 10%. Meiri samdráttur hefur ekki mælst frá einum janúarmánuði til annars frá því byrjað var að safna samanburðarhæfum upplýsingum af þessu tagi hjá Vegagerðinni. Umferð á öllum svæðum landsins dróst saman, mest á Suðurlandi eða um 21%, minnst á Norðurlandi eða um ríflega 5%.

Athyglisvert verður að fylgjast með umferðartölum í febrúar og mars til að sjá hvort janúar hafi gefið vísbendingu um hvað koma skuli í umferðini í ár.

Sömuleiðis verður fróðlegt að sjá tölur alls ársins 2012 í ljósi niðurstaða nýrrar könnunar Vegagerðinnar sem leiðir í ljós afar sterka fylgni aksturs landsmanna annars vegar og hagvaxtar (vergrar landsframleiðslu) hins vegar.

Það reynist hvorki meira né minna en 96% fylgni milli vergrar landsframleiðslu og aksturs á landinu frá 1975 til 2010. Umferðin jókst þannig um 3,8% 1975-2010 og verg landsframleiðsla jókst um 3% á sama árabili.

Taflan: fjöldi bíla í mánuði í göngunum. Í neðstu línu er hlutfallsleg breyting í hverjum mánuði 2012 miðað við sama mánuð 2011.

Ár

Jan

Febr

Mars

Apríl Maí Júní
2008

124.188

125.777

155.842

154.619

178.186

204.407

2009

125.822

122.739

134.034

160.586

176.350

213.155

2010 122.161 115.741

144.081

148.703

176.790

207.621

2011

114.938

112.552

122.095

144.528

157.011

202.525

2012

100.007

114.054




-12,99%

1,33%


Ár

Júlí

Ágúst

Sept

Okt Nóv Des

Alls

2008

238.715

223.700

164.209

143.569 137.682 128.042

2.006.090

2009

248.994

218.850

161.693 143.643 136.842

126.961

1.971.516

2010

245.062

214.962

163.425

154.951 129.609 129.177

1.952.283

2011

244.523

216.102

162.752

143.165 125.468 113.104

2012