Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Framkvæmdin

Framkvæmdin: Hugmynd verður að veruleika

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
1972

 

Möguleg jarðgöng undir Hvalfjörð komast í fyrsta sinn á prent í opinberri skýrslu. Nefnd á vegum samgönguráðherra nefndi botngöng eða jarðgöng sem möguleika til að bæta samgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Vesturlands.

 

1986

 

Hreinn Haraldsson, jarðfræðingur Vegagerðarinnar, kynnir sér nýjungar í jarðgangagerð í Noregi, þar á meðal neðansjávargöng.

 

1987

 

Nefnd samgönguráðherra um langtímaáætlanir í jarðgangagerð nefnir í skýrslu að miklar líkur séu á að jarðgöng undir Hvalfjörð verði þjóðhagslega hagkvæm. Hreinn Haraldsson kynnir fyrstu útreikninga og rannsóknaráætlun fyrir Hvalfjarðargöng, meðal annars á fundi Verkfræðingafélags Íslands

 

1987-90

 

Vegagerðin kannar hugsanlega jarðgangagerð í Hvalfirði. Fyrsta skýrslan 1987.

 

1988

 

Íslenska járnblendifélagið, Sementsverksmiðjan og Krafttak hafa frumkvæði að athugun á jarðgöngum.

 

1989

 

Ístak kannar möguleika á botngöngum í Hvalfirði.

 

1990

 

Birtar niðurstöður skýrslu starfshóps samgönguráðherra um samgöngur í utanverðum Hvalfirði. Tenging yfir/undir fjörðinn er sagður fýsilegur og arðsamur kostur og vitnað í frumspá Vegagerðarinnar um aukningu umferðar á svæðinu.

 

1990

 

Vegagerðin birtir skýrslu um rannsóknir allt frá árinu 1988 sem Orkustofnun, Hafrannsóknastofnun og fleiri komu að. Niðurstaðan er að vegasamband við utanverðan Hvalfjörð geti verið arðbær kostur.

 

1990

 

Vegagerðin, Járnblendifélagið og Akranesbær stofna Félag um jarðgangagerð.

 

1991

 

Hlutafélagið SPÖLUR stofnað.

 

1991-93

 

Rannsóknir á vegum SPALAR.

 

1994

 

SPÖLUR býður verkið út.

 

1996

 

Jarðgangagerð hefst í Hvalfirði.

 

1998

 

Jarðgöngin opnuð fyrir umferð.