Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir

Fréttir 2012

Umferð jókst um liðlega 2% í apríl

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferð í Hvalfjarðargöngum jókst um 2,28% í aprílmánuði eða um 3.300 ökutæki frá sama mánuði í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem umferð er meiri en á sama tíma árið 2011. Janúar er sér á báti á yfirliti fyrsta þriðjungs ársins 2012 með mikinn samdrátt frá fyrra ári.

Lesa meira...
 

Óvissa ríkir um hvenær ESB-tilskipun um neytendajafnfræði tekur gildi hérlendis

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

ESB-tilskipun um jafnræði neytenda mun leiða til verulegra breytinga á gjaldskrá Spalar fyrir venjulega fjölskyldubíla í Hvalfjarðargöngum (bíla undir 6 metrum) þegar hún tekur gildi hérlendis. Óvissa ríkir hins vegar um hvenær íslensk stjórnvöld samþykkja tilskipunina.

Evrópusambandið þrýstir á að tilskipunin gildi á öllu EES-svæðinu en norsk stjórnvöld hafa enn ekki samþykkt að innleiða hana. Íslensk stjórnvöld fylgjast með andófi Norðmanna og hafa ekki gefið eigendum Hvalfjarðarganga til kynna hvort þau hyggist innleiða tilskipunina eða láta ef til vill reyna á undanþáguákvæði varðandi Hvalfjarðargöng til lengri eða skemmri tíma.

Boltinn er með öðrum orðum í Stjórnarráðinu en stjórn Spalar hefur engu að síður rætt og kannað hvaða áhrif tilskipunin hefði á gjaldskrá ganganna. Samkvæmt tilskipuninni er óheimilt að veita meiri afslátt en 13% af veggjöldum, sem myndi þýða að veggjald fyrir staka ferð um göngin lækkaði um 45% en lægsta veggjald (100 ferðir í áskrift) myndi hins vegar hækka um 70%, miðað við verðlag 2012.

Veggjald fyrir staka ferð færi með öðrum orðum úr 1.000 krónum niður í 550 krónur en veggjald áskrifanda með 100 ferðir færi úr 283 krónum upp í 480 krónur.

Eitt er að samþykkja tilskipunina en annað að ákveða þá um leið hvort hún tæki gildi í einu lagi eða í áföngum, ef undanþáguákvæðum yrði beitt. Það skiptir máli fyrir Spöl og viðskiptavini félagsins því lögum samkvæmt á að ljúka við að greiða lán vegna Hvalfjarðarganga haustið 2018 og Spölur afhendir framhaldinu ríkinu umferðarmannvirkið skuldlaust til eignar og rekstrar.

Ef tilskipunin verður á annað borð látin taka gildi í áföngum til einhverra ára kann því að hilla undir gjaldfría umferð í göngunum innan skamms tíma þegar tilskipunin hefur tekið gildi til fulls.

  • Tilskipunin umrædda ber yfirskriftina Directive 2006/38/EC of the European Parliament and of the Council of 17 May 2006 amending Directive 1999/62/EC on the charging of heavy goods vehicles for the use of certain infrastructures. Hana má finna hér á Vefnum.

  • Tilskipunin er sem sagt ekki orðin hluti af EES-samningnum, fyrst og fremst vegna andófs Norðmanna. 

  • Ákvæðið sem kveður á um að óheimilt sé að veita meiri afslátt af veggjöldum en 13% er neðst í 4. kafla, staflið 4b:

4b. As charging structures involving discounts or reductions in tolls for frequent users may lead to actual savings in administrative costs for the infrastructure operator, Member States may provide for such discounts or reductions on condition that:

- they fulfil the conditions set out in paragraph 10(a),

- they comply with the Treaty, in particular Articles 12, 49, 86 and 87 thereof,

- they do not distort competition in the internal market,

- the resulting charging structure is linear, proportionate, available to all users on equal terms and does not lead to additional costs being passed on to other users in the form of higher tolls.

Such discounts or reductions shall in no case exceed 13% of the toll paid by equivalent vehicles not eligible for the discount or reduction.

 

Lokað tvær nætur í byrjun 19. viku

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt mánudags 7. maí og aðfaranótt þriðjudags 8. maí frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Þetta er nauðsynlegt til að ljúka verkum þar sem frá var horfið við þrif og viðhald þegar lokað var í nokkrar nætur fyrir mánaðarmótin.
 

Slökkviliðsæfing í göngunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

aefing_10Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar efndi til æfingar í Hvalfjarðargöngunum fyrir helgina, aðallega til að prófa öryggisbúnaðinn á vettvangi og nýja rafmagnsbílinn sem liðið fékk afhentan á dögunum.

Lesa meira...
 

5% aukning í mars

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferð í Hvalfjarðargöngum jókst um 5% í marsmánuði miðað við sama tímabil í fyrra eða um 6.000 bíla. Alls fóru ríflega 128.000 bílar um göngin í mars í ár en um 122.000 á sama tíma í fyrra. Fyrstu mánuðir ársins eru býsna sveiflukenndir eins og sést í meðfylgjandi yfirliti en þegar horft er á fyrsta ársfjórðunginn 2012 hefur umferðin aukist um 2% frá fyrra ári.

Lesa meira...
 

Minni umferð - viðunandi afkoma

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

aalfu_5Umferð í Hvalfjarðargöngum árið 2011 var 4,7% minni en 2010 og 8% minni en árið 2007. Umferðin 2011 var áberandi sveiflukennd eftir mánuðum en í heildina nálægt því sem stjórn Spalar áætlaði. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins á Akranesi síðastliðinn fimmtudag, 8. mars.

Lesa meira...
 

Viðbragðsáætlunin endurskoðuð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Aðalfundur Spalar 2012Endurskoðuð viðbragðsáætlun Hvalfjarðarganga tekur gildi á næstu vikum og gert er ráð fyrir að þeir, sem aðild eiga að áætluninni, efni til æfingar í göngunum síðar á þessu ári. Öryggismálin eru og verða fastir liðir á verkefnaskrá stjórnar Spalar.

Lesa meira...
 

Spölur færir slökkviliði rafbíl og annan björgunarbúnað

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Rafbíllinn afhentur í dag. Vinstra megin við rafbílinn/kerruna standa Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar og Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar en hægra megin Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri og félagar hans úr slökkviliðinu, Leiknir Sigurbjörnsson og Sigurður Þór Elísson.Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri veitti í dag viðtöku rafmagnsbíl og fleiri tækjum og búnaði sem Spölur, félagið sem á og rekur Hvalfjarðargöng, keypti til afnota fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þetta gerðist að loknum aðalfundi Spalar á Akranesi að viðstöddum aðalfundarfulltrúum og starfsmönnum Spalar.

Lesa meira...
 

Örlítil aukning í febrúar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Umferð í Hvalfjarðargöngum í febrúar 2012 var jókst örlítið miðað við sama tíma í fyrra en þá skal því líka til haga haldið að 2012 er hlaupár og hlaupársdagurinn 29. febrúar skekkir ögn samanburðinn. Hvað um það, niðurstaðan er sú að um 1.500 fleiri ökutæki fóru um göngin í febrúar í ár en í fyrra, sem er aukning um 1,3%.

Lesa meira...
 

Hagnaður upp á 281 milljón króna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Rekstur Spalar ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, skilaði 281 milljón króna hagnaði frá 1. október 2010 til ársloka 2011, samkvæmt ársuppgjöri sem félagið skilaði Kauphöll Íslands í dag. Rekstrarárið hefur hingað til verið frá október til september ár hvert en því hefur nú verið breytt og rekstrarár Spalar fylgir hér eftir almanaksárinu. Uppgjörið nú er því fyrir millibilsástand að þessu leyti og tekur til 15 mánaða.

Lesa meira...
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL