Bæjarstjórn Akraness skorar á innanríkisráðherra og Alþingi að hefjast nú þegar handa um tvöföldun Hvalfjarðarganga. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 25. október 2011.
Gunnar Sigurðsson var fyrsti flutningsmaður ályktunartillögunnar og mælti fyrir henni. Meðflutningsmenn voru Sveinn Kristinsson, Þröstir Þór Ólafsson og Guðmundur Páll Jónsson. Greinargerð tillögunnar, sem samþykkt var með níu samhljóða atkvæðum, hljóðar þannig:
Frá því að Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998 hafa áhrif þeirra verið mikil og jákvæð sunnan og norðan Hvalfjarðar. Umferð hefur aukist ár frá ári og þrátt fyrir eilitla minnkun á yfirstandandi ári er umferðin orðin það mikil að öryggi vegfarenda verður best tryggt með tvöföldun ganganna. Nú fara um 5.300-5.400 bílar að meðaltali daglega um Hvalfjarðargöng og í júlí-ágúst sl. var umferðin á dag að meðaltali um 7.100 bílar. Þá er ljóst að tvöföldun Hvalfjarðarganga er stórverkefni sem hefði án vafa jákvæð áhrif á atvinnulíf samhliða því sem unnið væri að nauðsynlegu samgöngu- og öryggismáli. Um þessar mundir er mun hagkvæmara að leita tilboða í verkefnið í stað þess að bíða þar til tvöföldun verður vegna aukinnar umferðar. Öll nauðsynleg undirbúningsgögn liggja fyrir varðandi verkefnið og því einfalt og fljótlegt að koma verkefninu í framkvæmd.



