Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2011 Fjárfest í auknum öryggis- og eftirlitsbúnaði fyrir nær 250 milljónir kr. undanfarna 14 mánuði!

Fjárfest í auknum öryggis- og eftirlitsbúnaði fyrir nær 250 milljónir kr. undanfarna 14 mánuði!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Sigurður Ívar Sigurjónsson, Jens Pétur Jensen og Gylfi Þórðarson.Öryggis- og eftirlitsbúnaður Hvalfjarðarganga hefur hefur verið efldur og aukinn svo um munar undanfarna fjórtán mánuði. Kostnaður við framkvæmdirnar nálgast 250 milljónir króna, þar af kostaði nýtt sívöktunarkerfi, sem tekið var í notkun seint á árinu 2010, um 84 milljónir króna.


Vegfarendur merkja á ferðum sínum undir Hvalfjörð að bjartara er nú en áður á köflunum inn af gangamunnum beggja vegna og sömuleiðis sjá þeir á gangaveggjum svokölluð flóttaljós, sem sett hafa verið upp og vísa á hvorn munna ef rafmagn fer af göngunum. Glöggir vegfarendur taka svo ef vill eftir því að skápum með slökkvitækjum og neyðarsímum hefur verið fjölgað.

gong20._gong21.ljos_fyrir_7087
Lýsing FYRIR fjölgun ljósa syðst í göngunum.
gong21._ljos-eftir_7086

Lýsing EFTIR fjölgun ljósa syðst í göngunum.

Unnið var að þessum breytingum og endurbótum í samræmi við sérstaka framkvæmdaáætlun sem stjórn Spalar samþykkti haustið 2009 til að uppfylla öryggiskröfur ESB-tilskipunar nr. 54/2004, sem tók gildi á Íslandi með reglugerð nr. 992/2007.  Nú hafa þessar kröfur verið uppfylltar að langmestu leyti og jafnvel gott betur en það í sumum tilvikum.

Það er ekki of mikið sagt að Hvalfjarðargöng séu nú mun betur vöktuð en nokkur annar kafli í samanlögðu þjóðvega- og gatnakerfi landsmanna, hvort heldur er í þéttbýli eða dreifbýli, á nóttu jafnt sem degi.

Helstu öryggisþættir frá nóvember 2010 til desember 2011

  1. Lýsing var aukin á innaksturs- og aðlögunarsvæðum  innan við gangamunna beggja vegna.
  2. Nýjum öryggisljósum var komið fyrir í lofti ganganna með 50 metra millibili (áður voru 108 metrar milli öryggisljósa).
  3. Ný „flóttaljós“ voru sett upp á veggi ganganna með 62,5 metra millibili. Þau slokkna ekki þótt rafmagn fari af göngunum og vísa til gangamunna beggja vegna.
  4. Nýir skápar með slökkvitækjum og neyðarsímum voru settir upp með 125 metra millibili. Í hverjum skápi eru tvö slökkitæki og eitt símtæki. Tvöfalt fleiri slökkvitæki eru nú í göngunum en krafist er í reglugerð.
  5. Ljósaskilti voru sett upp á gangaveggi þar sem vísað er á neyðarstöðvar og útskot og tilgreind fjarlægð að næsta gangamunna.
  6. Sívöktunarkerfi 57 nýrra myndavéla af fullkomnustu gerð var tekið í notkun. Þar við bætast alls 24 öryggisvélar sem fyrir voru innan og utan ganganna og eru notaðar áfram, þar á meðal þrjár fjarstýrðar vélar sem beint er að stærstu útskotunum í göngunum. Alls vakta því yfir 80 myndavélar göngin allan sólarhringinn!
      1. Tölvubúnaður nýja sívöktunarkerfisins greinir sjálfvirkt frávik frá  „eðlilegu ástandi“ og lætur vaktmenn í gjaldskýli vita ef til dæmis bíll stöðvast eða er stöðvaður, bílar lenda í árekstri, ef reykur myndast af einhverjum ástæðum, ef ekið er hægt eða hratt, ekið er inn í útskot eða ef farmur flutningabíls fellur af palli.
  7. Ljósleiðara- og lagnakerfi. Öllum þessum framkvæmdum fylgdi afar umfangsmikil vinna við að leggja og tengja nýja ljósleiðarastrengi og aðrar lagnir í göngunum, endanna á milli.